Samlagið - sköpunarverkstæði er samfélag listamanna og listkennara sem heldur utan um námskeið fyrir börn og fullorðna í skapandi greinum. Námskeiðin eru mismunandi eftir því hvað er verið að fjalla um hverju sinni, en unnið er að því að byggja upp skapandi hugsun og samfélag þar sem börn og fullorðnir njóta sín við skapandi iðju. Megináhersla á barnanámskeiðum er á skapandi hugsun auk þjálfunar í tæknifærni í teikningu, málun, mótun og þrykk/grafík.
Samfélagið
Samlagið hefur aðstöðu í Gránufélagsgötu 46 á Akureyri þar sem Þúfa 46 - listamannavinnustofur eru til húsa. Logo samlagsins var hannað af Terezu Kocianova árið 2025.
Lykilþættir
Fræðslustarf Samlagsins byggir á eftirfarandi lykilþáttum:
Sköpun og tjáning
Við trúum því að allir geti skapað. Í starfi Samlagsins fá þátttakendur tækifæri til að þróa eigin hugmyndir, kanna fjölbreytt efni og aðferðir og finna sína eigin rödd í gegnum listsköpun.
Fagmennska
Kennsla er í höndum starfandi listamanna og listkennara sem miðla þekkingu sinni af metnaði og virðingu fyrir ólíkum forsendum þátttakenda.
Vellíðan og öryggi
Við leggjum áherslu á jákvætt umhverfi þar sem þátttakendur upplifa öryggi, virðingu og gleði í sköpunarferlinu. Við leggjum áherslu á litla hópa og notalega stemningu.
Sjálfbærni
Leitað er leiða til að nýta efni á ábyrgan hátt, endurnýta þar sem við á og efla vitund þátttakenda um sjálfbærni í listsköpun.
Starfshættir
Kennsla í Samlaginu byggir á virkri þátttöku, tilraunum og reynslunámi. Áhersla er lögð á ferlið jafnt sem afraksturinn og hvatt er til forvitni, spurninga og skapandi lausnaleitar.
Í starfinu er:
• unnið með fjölbreytt efni og aðferðir,
• tekið mið af aldri, þroska og reynslu þátttakenda,
• lögð áhersla á einstaklingsmiðaða leiðsögn,
• skapað svigrúm fyrir frumkvæði og sjálfstæði,
• stuðlað að samvinnu og uppbyggilegum samskiptum.
Í lok hvers námskeiðs er leitast við að gera verk þátttakenda sýnileg með sýningu eða annarri kynningu sem eykur sjálfstraust og styrkir tengsl við samfélagið.
Markmið
Meginmarkmið Samlagsins - sköpunarverkstæðis fyrir listnámskeiðin eru eftirfarandi:
Hafa listnámskeið fyrir börn og unglinga
Halda listsýningar á verkum barna í lok hvers námskeiðs
Hafa gæða listkennslu þar sem starfandi listamenn/listkennarar koma að kennslu
leggja áherslu á skapandi hugsun og fjölbreyttar leiðir í listsköpun
Áhersla er á heimspekilegar samræður í tengslum við viðfangsefni hverju sinni.
Hafa þema í gegnum hvert listnámskeið til að skapa betri sýn á sýningar í lok námskeiða.
Hafa námskeið á hverri önn og a.m.k. eitt námskeið yfir sumartímann.
Stjórnun og fagleg sýn
Stjórnendur og kennarar Samlagsins bera sameiginlega ábyrgð á gæðum starfsins. Fræðslustarfið byggir á fagþekkingu í listum og listkennslu, sífelldri endurskoðun starfshátta og samræðu um þróun námskeiða.
Lögð er áhersla á:
• fagleg vinnubrögð,
• öflugt samstarf kennara,
• virka endurgjöf frá þátttakendum,
• stöðuga þróun námskeiða,
• tengingu við samfélagið og menningarlíf Akureyrar.
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Samlagsins - sköpunarverkstæðis, er að gefa börnum og fullorðnum tækifæri til óformlegs listnáms sér til fróðleiks og ánægju. Allir geta skapað. Hjá Samlaginu er tækifæri til þess að læra aðferðir og leiðir til að tjá sköpun sína undir leiðsögn listamanns og listkennara.
Ábyrgð
Allir sem starfa innan Samlagsins bera ábyrgð á að stuðla að jákvæðu, öruggu og skapandi námsumhverfi.
Kennarar bera ábyrgð á skipulagningu kennslu og velferð þátttakenda í starfi.
Stjórnendur bera ábyrgð á rekstri, faglegri stefnumótun og þróun starfsins.
Þátttakendur eru hvattir til að sýna sjálfum sér, öðrum og umhverfinu virðingu og taka virkan þátt í samfélagi Samlagsins.
Stefna þessi er lifandi skjal sem er endurskoðað reglulega í takt við þróun starfseminnar og þarfir þátttakenda.
Árið 2026-2027 verða þessir kennarar starfandi:
Elín Berglind Skúladóttir
Gillian Pokalo
Karólína Baldvinsdóttir
Ólafur Sveinsson
Sigrún Birna Sigtryggsdóttir